Þróun markaðsrannsókna hefur verið hæg undanfarna öld. Með tilkomu Internetsins og vaxandi áhuga á samfélagsvefjum hefur eðli markaðsrannsókna breyst. CLARA var stofnað með þessa þróun fyrir augum.
Hátæknifyrirtækið CLARA sem býr til viðskiptargreindarhugbúnað er staðsett í Reykjavík. Þar vinna starfsmenn þess við að leysa eitt mest spennandi vandamál sem markaðsfræðingar eiga við. CLARA var stofnað til þess að leysa það vandamál á nýjan og áhrifaríkan hátt. Með því að sameina gervigreind og textagreiningu gefum við viðskiptavinum okkar innsýn í umtal nánast í rauntíma, það er lausnin!
Teymið
Hjá CLARA er teymið lykillinn að árangri. Fyrirtækið samanstendur af starfsmönnunum og gæðin velta á sameiginlegum styrkleikum og visku þeirra. Teymið kemur frá þverfaglegum bakgrunni s.s. markaðsmálum, textagreiningu, þróun gervigreinda, sálfræði, heimspeki, stærðfræði og fleira. Stjórnunarteymið hefur áralanga reynslu en ferska sýn á hvernig eigi að búa til flókna en skilvirka hugbúnaðarlausnir.
Vöruþróun
Vöruþróunarteymið hefur þá ábyrgð að skila af sér bestu mögulega vöru sem í boði er. Teymið hefur víðtæka reynslu í gagnatækni, hugbúnaðarþróun, stærðfræði og gervigreindarhönnun auk starfsreynslu frá TM Software, Straumi, Kaupþing, Landsbankanum og öðrum. Þekkingin teymisin kemur frá skólum eins og University of California Berkley, University of Edinburgh, Háskóla Íslands og úr Háskólanum í Reykjavík.
Viðskiptaþróun
Okkar reyndustu menn fyrirtækisins leiða viðskiptaþróunarhluta þess. Reynsla þeirra við vinnu fyrir Coca Cola, Porsche, Microsoft, 66°Norður, Íslandsbanka og sameiginlega sýn á nýjar áherslur í markaðsfræðum sameinast hjá CLARA.


